Fara beint í efnið

Fræðsla

Að skilja lestur og lesblindu.

Réttur stuðningur byggir á skilningi á því hvar hindranirnar liggja og hvaða aðferðir geta styrkt færnina.

Lestur

Lestur byggir á mörgum þáttum.

Lestur er grunnfærni sem byggir meðal annars á hljóðgreiningu, orðaforða og lesskilningi. Með snemmtækri íhlutun og gagnreyndum aðferðum má styrkja færni og bæta námsárangur til lengri tíma.

Snow, 2002

Lestrarerfiðleikar og lesblinda

Vandinn getur birst á ólíkan hátt.

Lestrarerfiðleikar eru fjölbreyttir og geta tengst þáttum eins og athyglisbresti eða málþroska. Lesblinda er sértækur vandi við að tengja saman ritmál og hljóð.

Shaywitz, 2003

Snemmtæk íhlutun

Rétt viðbrögð snemma geta skipt sköpum.

Rannsóknir sýna að snemmtæk greining, meðal annars í 1.–2. bekk, getur haft mikil áhrif á framvindu lestrarnáms.

Ehri o.fl., 2001

Gagnreyndar aðferðir

Markviss kennsla skilar árangri.

Kennslan þarf að vera skýr, skipulögð, endurtekningarrík og sniðin að þörfum hvers og eins.

Archer & Hughes, 2011

Hljóðkerfisvitund
Hljóðaaðferð
Lestrarflæði
Orðaforði
Lesskilningur
Áhugi og hvatning